6. mars 2009

Upplestrarkeppnin 2009
Hún var haldin í Aratungu þann 3.mars.
Keppendur voru 16 úr 7.bekk í Reykholti og 2 frá Laugarvatni. Dómarar voru Sigríður Guttormsdóttir og Guðmundur Sæmundsson.
Foreldrum og gestum var boðið upp á veitingar á meðan dómarar lögðu hausinn í bleyti.
Dómara áttu í erfiðleikum með valið þar sem þeir töldu að allir hefðu staðið sig svo vel.
Úrslit urðu þau að fulltrúar okkar verða Dóróthea Ármann og Katrín Rut Sigurgeirsdóttir en vararmenn þau Teitur Sævarsson og Karen Gígja Agnarsdóttir.
Og lokakeppnin verður í Árnesi 11.mars.




Fréttina sendi Vilborg Guðmundsdóttir Vatnleysu
Myndirnar tók Helga María Brekku
Bestu þakkir báðar tvær.
Vefstjóri